Halldór Haraldsson - Henry Steel Olcotts minnst
Erindi við opnun Sumarskóla Guðspekifélagsins
28. júní 2007.
Hinn 17. febrúar á þessu ári voru 100 ár liðin frá andláti Henry
Steel Olcotts, fyrsta forseta Guðspekifélagsins og eins af helstu
stofnendum félagsins. Hefur þess verið minnst í hinum ýmsu deildum
Guðspekifélagsins víða um heim á undanförnum mánuðum. Eins og mörgum
er kunnugt hefur oft verið sagt, að Blavatsky hafi gefið heiminum
guðspekina, en Olcott Guðspekifélagið. Það er því ekki nema eðlilegt
að minnast þessa merka manns hér og rifja upp fróðlega og
forvitnilega þætti í lífi hans.
Henry Steel Olcott fæddist 2. ágúst 1832 í New Jersey í
Bandaríkjunum. Hann var því einu ári yngri en H.P.Blavatsky. Hann
var kominn af bresku heittrúarfólki sem flust hafði til
Bandaríkjanna. Árið 1860 kvæntist hann Mary Apple Morgan, en með
henni átti hann fjögur börn. Hjónaband þeirra reyndist ekki farsælt
og þau skildu samvistum 1874. Sem ungur maður öðlaðist Olcott frægð
fyrir að stofna fyrirmyndar bú með vísindalegum aðferðum í jarðrækt.
Varð þetta m.a. til þess, að er hann var 23 ára var honum boðin
staða yfirmanns Vísindalegrar jarðræktarstofnunar í Aþenu, sem hann
reyndar hafnaði og stuttu síðar stjórnunarstöðu sams konar stofnunar
í Washington, sem hann hafnaði einnig. Hann hafði skrifað bók um um
ræktun sykurreyrs, sem hlaut svo góðar undirtektir að mælt var með
henni sem kennslubók, en 1859 varð hann ritstjóri jarðræktarhluta
New York Tribune. Nú urðu þáttaskil og í næsta þætti ævi hans var
hann var skipaður yfirmaður rannsóknar á spillingu í bandaríska
sjóhernum. Þrátt fyrir ógnanir glæpamanna og að stofna lífi sínu í
hættu fletti hann ofan af spillingunni. Fyrir vel unnið verk og
hugrekki það sem hann sýndi við uppljóstrun spillingarinnar, sem
reyndist meiri en grunað hafði verið í fyrstu, hlaut hann mikið lof
og var sæmdur ofursta-nafnbót. Í framhaldi af þeim störfum var hann
síðan skipaður í þriggja manna nefnd til að rannsaka morðið á
Lincoln forseta. Ekki er ætlunin að fara nánar út í þessa þætti hér,
en þeir sýna hve mikils traust hann naut og þá miklu ábyrgð sem hann
var látinn axla. Í framhaldi af því hélt hann áfram námi í lögfræði
og lauk hann lögfræðiprófi 1868 og starfaði um hríð sem slíkur. Árið
1874 fór Olcott að fá áhuga á spirtisma. Það var einmitt á því sviði
sem fundum hans og Blavatsky bar saman. Sama ár les hann um
dularfull fyrirbrigði sem sögð voru gerast hjá fjölskyldu nokkurri í
Chittenden í Vermont. Hann heimsótti þennan stað nokkrum sinnum og í
einni slíkri heimsókn eða 14. október 1874 hittir hann Blavatsky
þar. Í hinum stórfróðlegu bókum sínum Old Diary Leaves eða Gömlum
dagbókarblöðum (í 6 bindum) segir hann m.a. frá fyrstu fundum
þeirra. Í upphafi fyrsta bindis segir hann: “Þar sem mér ber að
segja frá fæðingu og uppvexti Guðspekifélagsins verð ég að byrja á
byrjuninni, hvernig fundum stofnendanna bar saman. Það var raunar
mjög hversdagslegt: Ég sagði “Permettez moi, Madame,” eða “leyfið
mér, frú” og kveikti í vindlingi hennar. Kynni okkar hófust í reyk,
en hann varð að miklum og varanlegum eldi.”
Um þetta leyti bjó Blavatsky í íbúð á 3. hæð í Irving Street nr. 46
í New York og þar sem hún hafði þegar vakið athygli fyrir óvenjulega
þekkingu sína og ekki síður dulrænar gáfur voru ýmsir frjálshugsandi
menn farnir að venja komur sínar þangað. (Lamasetrið í 47. stræti
302 West). Þeir sem komu voru vísindamenn á ýmsum sviðum,
rithöfundar, málvísindamenn, fornfræðingar, víðsýnir prestar,
lögfræðingar, læknar, blaðamenn o.fl. Í dagbókum Olcotts er afar
fróðleg lýsing á tilurð Guðspekifélagsins.Þar segir hann:”Kvöld
eitt, hinn 7. september 1875, hélt Hr. Felt (arkitekt) fyrirlestur
sem hann nefndi: “Hin týndu rit um hlutföll í húsagerðalist
forn-Epypta.” Hann var frammúrskarandi teiknari og hafði undirbúið
sig með nokkrum frábærum teikningum sem sýndu kenningu hans um
hlutföllin sem forn-Egyptar notuðu, en einnig forn-Grikkir. Hann
hélt því fram, að með því að fylgja vissum vísbendingum væri unnt að
innrita það sem hann kallaði “fullkomna stjörnu.” Síðar segir
Olcott: “Meðan á fyrirlestrinum stóð fékk ég hugmynd sem ég hripaði
á miða og rétti William Judge sem var næstur mér og bað hann að
rétta hann Helenu Blavatsky sem sat við hlið hans. Á miðanum hafði
ég skrifað: “Væri það ekki góð hugmynd að stofna félag um svona
rannsóknarefni (stúdíu) ?” Blavatsky las miðann og kinkaði síðan
kolli til mín.” Þannig varð til kveikjan að stofnun
Guðspekifélagsins. Um nafn félagsins sagði Olcott: “Val á nafni
fyrir félagið var auðvitað mikið rædd. Margar uppástungur komu og
meðal þeirra, ef ég man rétt, voru Félag um egypsk fræði, Félag um
hermetísk fræði, Rósarkrossfélagið o.s.frv. , en engin þeirra
virtist ná því sem við höfðum í huga. Eftir að fletta í gegnum
orðabók, fann eitt okkar orðið Guð-speki (Theosophy) og eftir nokkar
umræður urðum við öll sammála um að það væri best.”
En, þetta var ekki fyrsta tilraunin til stofnunar slíks félags. Er
Blavatsky var í Kairó 1871 eftir að ferðast um Austurlönd, og var að
hefja störf sín fyrir hina andlegu fræðara sína, gerði hún tilraun
til stofnunar félags, sem hún nefndi Société Spirite. Sú tilraun
misheppnaðist. Um það sagði Olcott:” Ég varð erfingi hinna
misheppnuðu tækifæra Kairófélags hennar 1871.” Þá fékk hún boð um að
fara til New York, þar sem hún hitti Olcott og þau stofnuðu
Guðspekifélagið. Þrem árum síðar eða 18. desember 1878 fara Helena
P. Blavatsky og Olcott ofursti frá New York til Indlands. Í farteski
sínu hafði Olcott meðmælabréf frá forseta Bandaríkjanna til allra
sendiherra og konsúla, sérstakan diplomatapassa og hálfformlega
skipun um myndun menningar- og viðskiptatengsla. Þau komu til Bombay
(Mumbay) um miðjan febrúar 1879 og 1882 stofna þau höfuðstöðvar
Guðspekifélagsins í Adyar. Framundan beið þeirra mikið starf, hann
að byggja upp félagið, hún að skrifa bækur. Olcott skrifaði einnig
töluvert og hélt fyrirlestra. Auk Old Diary Leaves í 6 bindum má
nefna A Buddhist catechism (fræðslurit þar sem frumatriði Búddisma
sett fram í spurningum og svörum), Theosophy, Religion, and Occult
Science, The Hindu Dwaita Catechism, The Golden Rules of Buddhism
o.fl.
Olcott tókst nú á hendur fyrirlestrarferðir vítt og breitt um
Indland, en í kjölfar þeirra voru stofnaðar 123 stúkur í félaginu á
Indlandi. Stærsta verk hans beið á Sri Lanka (Ceylon). Bæði hann og
Blavatsky voru þegar yfirlýstir búddistar, en búddamunkur hafði vígt
þau 1880, rétt eftir að þau stigu fæti á land á Sri Lanka. Í kjölfar
fyrirlestra hans þar var brátt stofnuð deild í Guðspekifélaginu,
síðan önnur og síðan margar fleiri. Olcott bjó yfir lækningamætti og
varði hann talsverðum tíma á Sri Lanka til lækninga. En vegna
ábendingar frá andlega fræðara sínum hætti hann því og tók að
einbeita sér að andlegri fræðslu. Þegar honum var ljós hnignun
búddismans á Sri Lanka fór hann að fræða. Þar sem búddískar
bókmenntir voru ekki aðgengileg fólki á þeim tíma, tók hann sjálfur
til við að skrifa og þá kom út eftir hann Buddhist Catechism sem kom
að miklu gagni. En hann lét þar ekki staðar numið heldur tók
rækilega til hendinni í fræðslumálum eyjarinnar. Árið 1880 er hann
kom þangað voru þar tveir búddískir skólar. Hins vegar voru 805
skólar á vegum kristnu kirkjunnar, sem kenndi nemendum búddisma á
afskræmdan hátt til að snúa þeim til andstöðu við hann. Til að
stemma stigu við þessu stofnaði hann Búddíska Guðspekifélagið. Á
árunum 1880-1890 voru stofnaðir hvorki meira né minna en 142
búddískir skólar og er óhætt að eigna Olcott heiðurinn af því
þrekvirki enda nýtur hann mikillar virðingar á Sri Lanka enn í dag.
Þá má ennfremur nefna, að Olcott beitti sér einnig fyrir stofnun
skóla fyrir stúlkur, en fram að þeim tíma þekktust yfirleitt ekki
skólar fyrir kvenfólk. Það má því með sanni segja, að hann hafi
verið á undan sínum tíma.
Blavatsky hafði þegar á fyrstu árunum í New York smám saman farið að
fræða Olcott um tilveru fræðara sinna í Austurlöndum og að til væri
leynilegt bræðralag þeirra. Þekkt er þegar meistarinn M heimsótti
Olcott kvöld eittt í íbúð hans í New York og skildi eftir hjá honum
vefjarhött sinn. Síðar átti Olcott eftir að hitta þessa dularfullu
fræðara, KH o.fl. á næstu árum. Um Olcott eru m.a. eftirfarandi orð
höfð eftir KH: “Honum getum við treyst fullkomlega undir öllum
kringumstæðum og hinni tryggu þjónustu hans.”
Við stofnun Guðspekifélagsins í New York 17. nóvember 1875 sagði
Olcott m.a. í upphafsræðu sinni (í þýðingu Sigvalda Hjálmarssonar):
“Við erum rannsakendur, einlægir í markmiðum og hleypidómalausir í
hugsun, stúderum alla hluti, reynum alla hluti og höldum fast við
það sem er gott. Við höfum ekkert tilbúið efni til að trúa á, en
verðum að afla okkur þess sjálf. – Við tilheyrum okkar öld, en erum
þó aðeins á undan... Við leitum, spyrjum, höfnum engu án ástæðu,
játum ekkert án sannana: Við erum nemendur, ekki kennarar.”
21. júní 2007,
Halldór Haraldsson