Greinar eftir Halldór Haraldsson
Hvað opnar Da Vinci lykillinn?
Samhyggð-kærleikur – grundvöllur friðar og skilnings
Hvað felst í því að vera guðspekisinni?
Greinar eftir Halldór Haraldsson
Hvað opnar Da Vinci lykillinn?
Samhyggð-kærleikur – grundvöllur friðar og skilnings
Hvað felst í því að vera guðspekisinni?
Munurinn á virkri og óvirkri andlegri leit og hvernig þetta tvennt getur farið saman.
„Það hafði rignt alla nóttina og mestallan morguninn og nú var
sólin að hverfa bak við dimm og þungbúin ský. Himinninn var sem
litlaus, en ilmur af regnvættri jörðinni fyllti loftið. Froskarnir
höfðu kvakað alla nóttina, en með morgninum urðu þeir hljóðir.“
Þannig hefst ein af mörgum náttúrulýsingum J. Krishnamurtis sem gefa
okkur nokkra innsýn í þann hug sem býr yfir andlegum tærleika og það
hvernig hann sér og upplifir umhverfið eða öllu heldur þegar það á
sér stað skoðun, handan skoðanda og hins skoðaða.
Síðan heldur hann áfram: „Trjástofnarnir voru dökkir af regninu og
laufblöðin, sem ryk sumarsins hafði skolast af, mundu aftur verða
græn og full af lífi eftir fáeina daga. Grasvellirnir mundu líka
verða grænni, trjárunnarnir mundu bráðum blómstra og gleðin ríkja.
Hve regnið var velkomið eftir allan hitann og rykið! Fjöllin handan
hæðarinnar virtust ekki vera of fjarri og golan frá þeim var bæði
svöl og hrein. Það mundi verða meira um vinnu, gnægð matar og hungur
mundi heyra fortíðinni til. Einn þessara stóru, brúnu arna hnitaði
hringa í loftinu, svífandi í andvaranum án þess að blaka vængjunum.
Hundruð fólks á reiðhjólum voru á heimleið eftir langan vinnudag á
skrifstofunni.“
Gesturinn sem beðið hafði um viðtal var fyrrverandi embættismaður
hjá stjórninni. Hann hafði hlotið fyrsta flokks menntun bæði heima
og erlendis. Hann var kvæntur og átti uppkomin börn. Vel að sér í
sanskrít og þekkti helgiritin. Skyndilega fékk hann óstjórnlega
löngun til að verja því sem eftir var ævinnar í íhugun, helga lífið
andlegri leit. Hann tjáði þetta konu sinni og tveim sonum sem voru
við háskólanám. Hann hafði lagt til peninga handa konu sinni og
fyrir námi sona sinna. Þetta hafði gerst fyrir 25 árum. Hann beitti
sjálfan sig hörðum aga sem var honum erfitt eftir þægilegt líf. Það
tók hann langan tíma að ná stjórn á ástríðum sínum. Að lokum tók
hann að fá sýnir af Búddha, Kristi og Krishna, töfrandi af fegurð og
dögum saman lifði hann í eins konar leiðslu.
„Ég hafði tekið að mér nokkra lærisveina og einn þeirra benti mér á
að hlýða á einn af fyrirlestrum yðar. Þar var sagt að án
sjálfsþekkingar væri öll íhugun sjálfsdáleiðsla, endurspeglun eigin
hugsana og óska.“ Í lok viðtalsins við Krishnamurti segir gesturinn:
„Ég hef verið upptekinn af íhugandanum, leitandanum, þeim sem
reynsluna hlýtur, sem er ég sjálfur. Ég hef lifað í skemmtilegum
garði, búnum til af sjálfum mér og hef verið fangi í honum. Ég sé
núna, óljóst að vísu, að allt þetta er falskt - en ég sé það.“
Heiti þessa erindis er „Neti og iti.“ Uppgötvun gestsins hér í
viðtalinu er gott dæmi um neti sem bókstaflega þýðir „ekki þetta“ og
stendur fyrir það viðhorf að losna undan blekkingu maya með eins
konar útilokunaraðferð. Hisminu er hafnað, lagt til hliðar og það
sem eftir verður er kjarninn, hinn andlegi veruleiki.
Krishnamurti segir meðal annars við gest sinn: „Þú hefur iðkað
sjálfsstjórn, náð tökum á huganum og einbeitt þér að áframhaldandi
reynslu. Slík iðkun er sjálfshyggja, ekki íhugun. Að skilja að það
sé ekki íhugun er upphaf íhugunar.“ Og ennfremur: „Frelsið undan
hinu falska næst ekki með því að óska þess að ná því, það kemur
þegar hugurinn er ekki lengur háður hugsuninni um árangur, að komast
að niðurstöðu. Það verður að hætta allri leit, en þá fyrst er
möguleiki á að fram komi það sem nafnlaust er. Hugurinn er afsprengi
tímans eins og öll hugsun er árangur hans, og hugsun, sem vinnur að
því að leysa sig frá tímanum, styrkir aðeins fjötra sína við tímann.
Tíminn er aðeins til þegar reynt er eyða í sálarlífinu bilinu á
milli þess sem er og þess sem ætti að vera, sem nefnt er hugsjón,
takmark. Meðvitund um hið falska í þessum hugsunarhætti veitir um
leið frelsi frá honum - sem krefst hvorki áreynslu né iðkunar.“
Í eyrum sumra hljómar þetta e.t.v. heldur kaldranalega. Hér er
Krishnamurti að taka frá þessum ágæta manni heim fegurðar sem hann
hefur lifað í. Hvað er rangt við það að iðka jákvæða íhugun, byggja
sér upp heim andlegrar fegurðar og jafnvel sjá sýnir af helgum
mönnum? Hafði þessi ágæti andlegi leitandi sóað tíma sínum til
einskis með andlegum iðkunum sínum? Þessum viðhorfum hafa
áreiðanlega margir velt fyrir sér. Við skulum skoða þau örlítið
nánar.
Viðhorfið sem fram kemur í svari Krishnamurtis er hið svokallaða
„neti“ viðhorf. Sanskrítarorðið neti þýðir bókstaflega „ekki þetta“,
ne-ti, en í því felst að við þurfum að losa okkur við allt það safn
hugsana sem skyggir á hinn andlega veruleika hið innra. Það þurfi
því að leysa upp allt hugsanasafnið með vakandi athygli og
afstöðunni „ekki þetta“, neti, neti. Þá er möguleiki á að
veruleikinn birtist. Viðhorf þeirra sem aðhyllast þetta sjónarmið er
að með því að beita hinu jákvæða viðhorfi sem nefnist iti, i-ti,
safni andlegi leitandinn að sér hugmyndum og ímyndum sem hann fer
síðan að búa í - þ.e. lifi í blekkingu.
Við skulum nú skoða „iti“ viðhorfið betur. Hér er lögð áhersla á
jákvætt hugarfar í einu og öllu, reglulega andlega iðkun sem felst í
ákveðinni aðferð íhugunar, þjálfa einbeitingu hugans, efla mátt
hugans sem sagður er mikill, hugleiða á veruleikann hið innra,
„guðsríkið hið innra“, og ná þannig valdi á huganum. Hér er lögð
áhersla á að þroska með sér dyggðir, viljakraft, skilning og fá
innblástur af því að lesa um menn sem náð hafa háum andlegum þroska.
Á þessari leið þykir það efla andlega leitandann að taka helgan mann
sér til fyrirmyndar. Þetta er það sem Indverjar kalla ishta eða
ishta devata, guðleg fyrirmynd.
Í kristnum sið er þekkt rit sem fjallar að mestu leyti um þessa leið
og nefnist „Breytni eftir Kristi“ eftir Thomas à Kempis. Í þekktu
indversku riti um andlega ástundun, „Hinn eilífi förunautur“ (The
Eternal Companion), eftir Svamí Brahmananda, einn af helstu
lærisveinum Sri Ramakrishna, segir höfundur: „Er þú hugleiðir þína
völdu andlegu fyrirmynd, hugsaðu þá um hana sem bjarta og skínandi
og að allt umhverfis sé skínandi vegna birtu hennar. Hugsaðu þér
hana sem lifandi og fulla meðvitundar.“ Síðan heldur hann áfram og
segir: „Þegar þú heldur áfram að hugleiða með þessum hætti mun form
þinnar andlegu fyrirmyndar smám saman leysast upp og yfir í
óendanleikann. Á eftir mun fylgja greinileg tilfinning fyrir lifandi
nærveru uns að lokum opnast auga viskunnar og bein skynjun
óendanleikans.“
Þá er fróðlegt það sem höfundur segir um hinn andlega fræðara,
gúrúinn: „En vita skaltu! Það er enginn fræðari huga þínum meiri.
Þegar hugurinn hefur hreinsast með bænum og íhugun mun hann
leiðbeina þér hið innra. Jafnvel í daglegum skylduverkum þínum mun
þessi innri fræðari leiðbeina þér og hann mun halda áfram að hjálpa
þér uns markinu er náð.“ Hér er lögð áhersla á að það er ekki
persónuleiki hins andlega fræðara sem er aðalatriðið heldur getur
hann vakið upp okkar innri fræðara. Við verðum því ekki háð honum
persónulega.
Tengt og yfirleitt samfara þessari jákvæðu íhugunaraðferð, þar sem
hugleitt er á andlega fyrirmynd, er iðkun sem nefnist japa sem þýðir
að endurtaka í hljóði nafn guðs eða möntru í huganum. Algengast er
að hugleiða á óm. Einnig er hugleitt á nöfn andlegra fræðara.
Heimspekilega sinnaðir leitendur hugleiða oft með sanskrítar
atkvæðunum so-ham. So þýðir andlegi veruleikinn og ham er stytting á
aham sem þýðir „ég er“, grunsamlega líkt „I am“ á ensku, enda
samstofna. Þ.e. ég er (ek em) hann, andlegi veruleikinn. Sumir
fræðarar kenna þessi atkvæði viðsnúin: hang-sah. Iðkun þessi er oft
í tenglsum við andardráttinn og nefnist hún einnig mantra yoga, þ.e.
að endurtaka möntru. Henni er einnig oft líkt við það að hreinsa
blekbyttu. Við hellum stöðugt hreinu vatni í byttuna þar til engin
merki eru eftir af bleki. Hreinsandi vatnið er sífelld iðkun ishta
og japa. Blekbyttan er hugur okkar og dulvitund. Þessi aðferð þykir
einn besti hreinsari á þessu sviði. Í nýlegri bók sinni um andlega
iðkun segir Svamí Shraddhananda sem er nýlega látinn: „Iðkandinn á
að hugsa sér að endurtekningin á óm eða heilögu nafni framkalli
andlega strauma í líkama, huga og orkukerfi (pranakerfi) hans.
Þessir straumar eru ekki efnislegir eins og hiti eða rafmagn, heldur
andlegir straumar. Smám saman renna straumar japa saman við
lífsorkuna, prana. Iðkandinn upplifir samruna þessara tveggja
strauma. Þetta leiðir til hærri andlegrar upplifunar, þar sem
birting prana og japa verður eitt.
Á næsta stigi mun orðið sem endurtekið er birtast sem vitund.
Iðkandinn upplifir möntruna sem vitund skínandi ljóss. Ljós þetta
breiðist út um hugann og orku líkamans og fyllir hjartað
óumræðilegum friði.“ Síðar segir höfundur: „Hugann þarf að þjálfa
til að geta séð sérhvern hlut sem vitund. Í fíngerðu ástandi
japa-iðkunar getur andlegi leitandinn fundið alla sköpunina koma út
úr möntrunni. Hinn víðfeðmi alheimur, sérhver hluti hans, er
endurvarp möntrunnar sem óm-Brahman. Og á gagnstæðan hátt getur
hvers konar hlutlæg þekking runnið saman við óm-Brahman. Þetta mætti
einnig nefna laya yoga, yoga uppleysingar. Fyrir andlega leitandanum
er alheimurinn ekki lengur víðfeðmur. Mantran er að taka hann inn í
sig, stig af stigi. Frá guði formbirtingar breytist ishta mantran í
áttina að því formlausa. Við getum sagt að eftir að mantran hefur
sogið í sig alheiminn verði hún eftir sem bindu, punktur. Punktur
hefur engar víddir. Hann er hvorki stór né lítill, hvorki fjarri né
nærri. Mantran er samt sem áður ekki flatarmálspunktur. Hún er æðri
vitund sem hin minnsta, ómælanlega, ólýsanlega heild.
Hér erum við komin inn á svið sem ég hef fjallað um áður, þ.e.
kenningar Vedantaspekinganna að fornu og nýju um eðli veruleikans.
Eins og þá var sagt er sá munur á austurlensku heimspekingunum og
þeim vestrænu m.a. sá, að þeir síðarnefndu virðast aðallega halda
sér við hina huglægu hlið, en þeir fyrrnefndu telji aftur á móti
manninum mögulegt að upplifa sjálfan veruleikann.
Svamí Gnaneswarananda segir m.a. svo í einu ágætu yogariti sínu:
„Hinn mikli heimspekingur og vitringur Shankaracharya endurreisti
einhyggju, monisma, á áttundu öld. En endurvakning Advaita Vedanta
hófst í raun með hinum hálærða Gaudapada Acharya, læriföður
Shankara. Gaudapada setti fram ajatavada, ekki-sköpunar-kenninguna.
Við gætum endurtúlkað hana á einfaldan hátt einhvern vegin svona:
Sköpunin er hrein martröð. Vaknið! Það er allt og sumt sem þarf. En
enginn hlustaði á hann. Enginn skildi hann. Aðeins lærisveinn hans
Govindapada skildi hann.
Gaudapada hélt því fram með ajatavada kenningu sinni að sköpun hafi
aldrei átt sér stað. Þess vegna sé engin grundvöllur fyrir
spurninguna um guð, sálina eða alheiminn. Hvers konar
tvíhyggjuhugtök séu aðeins draumórar. Brahman einn er til. Til að
geta skilið þetta fæst ekki með rökræðum og heldur ekki með því að
spyrja hvers vegna, heldur með því einfaldlega að vakna upp af
þessari martröð tvíhyggjuupplifunar. Ef þú ert í dimmu herbergi
spurðu þá ekki hvers vegna það er dimmt. Þú kveikir ljósið og dimman
hverfur.“
Síðar segir höfundur frá kenningu Shankara m.a. þannig: „Shankara
hélt fram ajatavada eða ekki-sköpunar-kenningu Gaudapada frá
sjónarhóli vivartavada. Þ.e. þegar hlutur virðist vera eitthvað sem
hann er ekki. Klassíska dæmið sem jafnan er tekið um þetta er reipið
sem virðist vera snákur. Shankara hjálpar andlegum leitendum að ná
frá þessum afstæða heimi yfir í djúpan skilning með hjálp
sundurgreiningar og sjálfsögunar. Alla heimspeki hans má taka saman
í stuttu máli: „Brahman er eini veruleikinn. Heimurinn er
óraunverulegur. Hin einstaklingsbundna sál eða sjálf er ekkert annað
en Brahman.“ Þeir sem hafa viðhorf þessa merka Vedantaspekings að
leiðarljósi beita huganum, rökhyggju við að greina kjarnann frá
hisminu, veruleikann frá táli, þ.e. ne-ti, ne-ti.
Einn helsti Vedantaspekingur nútímans, Sri Ramana Maharshi, sem lést
1951, notaði einnig hugann og rökhyggju á einfaldan hátt með því að
spyrja sjálfan sig: „Hver er ég?“ Í því sambandi er til saga af
þekkta þýska heimspekingnum Schopenhauer sem reyndar hafði áhuga á
austrænni heimspeki. Hann sökkti sér oft í djúpar hugleiðingar er
hann fór í gönguferðir. Eitt sinn gekk hann óvart inn í stórt
blómabeð í garði nokkrum og stóð þar í djúpum þönkum. Reiður
garðvörður hrópaði til hans: „Hver heldur þú að þú sért?“ Og
Schopenhauer svaraði: „Ja, ef ég vissi það nú!“
Markmið Vedantaspekinnar er ekki aðeins vitrænn skilningur á
veruleikanum, heldur eins og áður sagði, bein reynsla af honum.
Þegar Sri Ramana Maharshi var að móta viðhorf sín og
sjálfsskoðunaraðferð sína upp úr aldamótunum 1900 kom fram að hún
fólst ekki aðeins í því að spyrja með orðum „hver er ég?“ heldur
ekki síður að rekja allar hugsanir til róta sinna með þeim
afleiðingum að þær hyrfu og skildu eftir Sjálfið eitt sem
veruleikann. Egóið, ég-hugsunin, er ekki veruleiki og ef hún er
krufin leysist hún upp sjálfkrafa og þá birtist Sjálfið, veruleikinn
í sinni skínandi mynd. Ramana hafði ekki trú á því að freista þess
að ná tökum á eða að drepa hugsanir með huganum. Eina leiðin væri að
komast að rótum hugans, halda sér við þær og þá mundi hugurinn
hverfa af sjálfu sér. Vitsmuni, röksemdir hugans sé unnt að nota
aðeins að vissu marki.
Er við skoðum ævi hinna ýmsu andlegu fræðara er Sri Ramana einstakt
tilfelli að því leyti að hann virðist hafa upplifað andlegan
veruleika án nokkurrar hjálpar formsins. Jafnvel Krishnamurti á
sínum yngri árum sá sýnir af ýmsum þeim meisturum sem stóðu á bak
við Guðspekifélagið, svo og Búddha og Maitreya. Eitt sinn er Ingram
Smith spurði hann hvort hann hefði séð meistarana svaraði hann því
óvænt játandi. Síðan sagði hann frá því, er hann sá meistarann K.H.
(Koot Humi), sem hann hafði þá oft séð áður, að hann hefði nálgast
hann og síðan gengið í gegnum hann. Er hann sneri sér við var K.H.
horfinn og hann sá hann aldrei framar. Ramakrishna hafði séð hina
guðlegu móður árum saman, rætt við hana næstum daglega og hafði
reyndar borið öll sín vandamál fyrir hana, en fyrir hvatningu
Vedantaspekingsins Tota Puri leysti Ramakrishna upp mynd móðurinnar
og náði þá beinni upplifun af formlausum veruleikanum.
Gestur Krishnamurtis hafði séð sýnir af andlegum vitringum, Búddha,
Kristi og Krishna. Andlegur ferill hans virðist að þessu leyti ekki
frábrugðinn öðrum andlegum leitendum. Við spurðum áðan hvað væri
rangt við slíkar upplifanir og hvort gesturinn hefði sóað tíma sínum
óþarflega í slíka hluti. Fyrst svo margir virðast hafa farið í
gegnum slíkar upplifanir, eru þær ef til vill eðlilegar. Er það þá
hið eðlilega ferli andlegrar þróunar að byrja með jákvæðu eða
iti-viðhorfi sem smám saman breytist á vissum tímapunkti yfir í
neti-viðhorfið?
Indverska skáldið Rabindranath Tagore sagði einhvern tímann eitthvað
á þá leið að sem barn hefði hann hugsað sér að þegar hann yrði stór
mundi hann kaupa öll leikföngin í leikfangabúðinni. Er hann náði
fullorðins aldri voru áhugamálin öll breytt og hann hafði engan
áhuga á því lengur að kaupa leikföngin. Tagore sagði einnig að hann
gæti elskað guð sinn, því að hann hefði gefið sér hæfileikann til að
afneita honum. Við skulum því hvorki vanmeta veraldleg né andleg
leikföng, þau eru líklega eðlileg á sínum stað og tíma, en líklega
er heldur ekki eðlilegt að vera háður þeim of lengi.
Líf Sri Ramakrishna var ríkt af andlegum fyrirbærum. Sagt er frá
flökkumunki, Jatadhari að nafni, sem komst í kynni við Ramakrishna.
Jatadhari bar ávallt á sér litla styttu af Rama sem barni, sem allir
Hindúar dýrka sem eina af holdtekjum guðs. Munkur þessi færði
styttunni matarfórnir og hafði hana jafnvel með sér er hann tók
sundspretti í Gengesfljótinu. Líf hans var allt helgað hinu heilaga
barni. Hann tók að sjá sýnir af Rama þar sem hann birtist honum sem
lifandi sveinbarn. Hann gat jafnvel séð sveinbarnið dansa og hlæja.
Ramakrishna sem var kunnugt um takmarkanir andlegra leitenda og
hvenær þeim væri ekki hollt lengur að ánetjast slíkum sýnum kom
Jatadhari út úr þessum heimi sínum með barninu á skemmtilegan hátt.
Eitt sinn er Jatadhari sat í musterisgarðinum tók hann eftir því að
hann saknaði barnsins. Eftir nokkra leit sá hann hvar barnið hans
var að leika við Ramakrishna. Honum brá því honum hafði ekki komið
til hugar sá möguleiki að barnið léki sér við nokkurn annan. Eftir
þetta tók barnið að leika sér meir og meir við Ramakrishna og æ
meira var Jatadhari skilinn einn eftir, uns dag einn að það rann upp
fyrir honum ljós. Jatadhari kom til Ramakrishna og sagði við hann:
„Ég ætla að gefa þér þessa styttu of Rama. Ég hef dýrkað hana í mörg
ár og nú skil ég að ég þarfnast hennar ekki framar.“ Sagt er að
Ramakrishna hafi ekki á neinn hátt gefið Jatadhari í skyn að sýnir
hans hefðu verið blekkingar, aðeins að um skeið hefðu þær
einfaldlega uppfyllt hinar andlegu þarfir hans. Til eru margar
fleiri frásagnir af hæfileika Ramakrishna að losa andlega leitendur
við hefðbundnar trúarlegar sýnir sem þeir urðu háðir um tíma.
Í lífi Ramakrishna kemur oft skýrt í ljós að honum var ekki aðeins
ljóst að heimurinn væri ekki það sem hann virtist vera, hann hafði
margsinnis upplifað það sem Shankara hélt fram, að Brahman væri eini
veruleikinn. Heimurinn er óraunverulegur - og Sjálf einstaklingsins
er ekkert annað en Brahman. Hins vegar leit Ramakrishna aldrei svo á
að hinn draumkenndi, afstæði veruleiki tilverunnar ætti sér ekki
ákveðna þýðingu þar sem hin guðlega návist birtist stöðugt í gegnum
hann.
Það er okkur mikils virði að fram hafi komið einstaklingar eins og
Ramakrishna, Ramana Maharshi og fleiri sem vísað geta okkur veginn.
En eins og Krishnamurti segir verðum við sjálf að ganga hann.
Ramakrishna var sí og æ að hjálpa öðrum að hjálpa sér sjálfir. Hann
lagði áherslu á jákvæðu leiðina og einnig að vera jákvæður gagnvart
öðrum og hjálpa þeim. Svamí Vidyatmananda (John Yale) sem var í mörg
ár í Vedantasetrinu í Gretz sunnan Parísarborgar, hefur sagt frá
kynnum sínum af Svamí Ritajananda sem þar var lengi í forsvari.
Ritajananda lagði ávallt áherslu á að vera jákvæður. Hann gefur dæmi
um afstöðu sína. Um skeið sótti þekktur franskur söngvari eftir
leiðsögn hans og þar sem líf hans sjálfs var í rugli þrátt fyrir
frægð og frama hafði hann fengið taugaáfall, sífellt í
skilnaðarmálum, eiturlyfjum og öllu tilheyrandi. Hann sótti samtímis
til sálfræðings. Ritajananda veitti honum viðtöl hvort heldur að
degi eða nóttu, en vandamálið var ávallt það sama: þunglyndi og
vöntun á sjálfstrausti. Svamí Vidyatmananda segir sjálfur svo frá:
„Ég spurði: „Svamí, hefur þú ekki fengið nóg af þessu? Það virðist
ekki vera nein framför.“ „Nei, það virðist ekki vera nein framför -
en hann gæti breyst. Alltaf það sama - en hann gæti breyst. Hann
hefur ekki breyst ennþá - en hann gæti breyst.“ Þetta er að vera
jákvæður.
Hér höfum við fengið dæmi um hvernig margir þurfa á stuðningi að
halda, hvort heldur það að hafa andlegan stuðning af ímyndum af
guðlegum holdtekjum eða fyrirbænum. Við skulum ekki vera of fljót að
dæma eitt eða neitt. Allt virðist þetta eiga sér sinn stað og tíma.
Við leikum okkur að leikföngum á vissum tíma, annars konar
leikföngum á öðrum tíma og þótt við teljum okkur vaxa upp úr öllum
leikföngum einhvern tíma birtast þau ef til vill í nýrri mynd sem
við áttum okkur ekki á. Við höfum fjallað hér um svokallaða jákvæða
og neikvæða huglæga og sálræna afstöðu til andlegra leiða ef svo má
segja. Frá vissum sjónarhóli og á vissum tíma getur okkur virst að
um tvær gagnstæðar leiðir sé að ræða.
Í riti Búddhistafélagins í London um einbeitingu hugans og íhugun
segir á einum stað: „Í fáum orðum sagt finnum við hér leiðir sem
velja verður um, að losa okkur við ekki-sjálfið eða að verða Sjálfið
(með stóru essi.) Suður-Búddhisminn aðhyllist fyrri leiðina,
indverska heimspekin þá síðari, en Mahayana Búddhisminn felur í sér
báðar.“ Svona einfalda framsetningu er ágætt að lesa sér til
glöggvunar, en hún er bara ekki alls kostar rétt, því að í
indverskri heimspeki er einnig bæði sjónarmiðin að finna. Ekki
aðeins það, heldur er og sýnt fram á samræmið bæði heimspekilega og
í andlegri iðkun. Heimspekilega séð þarf vart að endurtaka að innan
indverskrar heimspeki er bent á margar leiðir að sama marki, nokkuð
sem Sri Ramakrishna sannaði í lífi sínu, og í iðkun sinni hafa
margir sjáenda bent á samræmi hinna ýmsu leiða. Vivekananda lagði
áherslu á að fáir nútímamenn hafi tíma til að ástunda eina leið
alfarið, hyggilegra sé að ástunda fleiri yogaleiðir samtímis, það er
íhuga starfið með karma yoga, rækta kærleiks- og tilbeiðslueðlið með
bhakti yoga, þjálfa dómgreindina og þekkinguna með gnani yoga, iðka
einbeitingu hugans og íhugun með raja yoga og leggja áherslu á þá
leið sem okkur er eðlilegust. Þá er ekki nauðsynlegt að iðka jákvæða
leið um tíma og breyta svo um í neikvæða. Þetta getum við gert í
sömu hugleiðingunni. Eins og Brahmananda benti á leysist ímynd sú
sem við hugleiðum á, hvort sem hún er persóna, tákn eða eitthvað
annað, smám saman upp í hugleiðingunni yfir í óendanleikann. Og
Shraddhananda segir meðal annars um „neti, neti“-leiðina: „Leiða
þessar neitanir yfir í tómleika? Nei. Þær leiða að lokum yfir í
uppgötvun Sjálfsins, sem er handan bæði staðhæfingar og neitunar. Þá
mun egóið uppgötva sitt sanna eðli sem hefur allan tímann verið hin
tímalausa vitund, Sjálfið.“
Í sinni ágætu bók, „Litróf vitundarinnar“ (The Spectrum of
Consciousness) greinir höfundurinn, Ken Wilber, frá þrem þáttum
vitundarinnar sem fram koma í faglegum tilraunum franska
geðlæknisins dr. Benoit, sem hann síðan ber saman við sams konar
þætti hjá J.Krishnamurti, Vedanta-heimspekinni og Zen Buddhisma.
Þættir þessir eru: 1. Virk athygli, 2. Stöðvun hugsana og 3.
Hlutlaus næmleiki vitundarinnar.
Dr. Benoit sýnir sérstakan áhuga á því stigi vitundarinnar sem varir
rétt áður en við mótum hugsanir okkar í orð og hugtök. Virka
athyglin felst í því að hafa vakandi athygli fyrir því hvernig
hugsanir og tilfinningar verða til. Þessi vökula athygli er sér jafn
mikið meðvitandi um bæði það sem er hið ytra og innra. Ef þessi
virka athygli tekst leiðir hún yfir í stöðvun hugsana, þ.e. hugurinn
hættir að búa til ímyndir, dvelur við það sem er, sem leiðir af sér
mikla hugkyrrð og þögn. Ef þessi stöðvun er hrein og algjör leiðir
hún yfir í hlutlausan næmleika vitundarinnar. Hér er um að ræða
sérstakan næmleika fyrir því að sjá inn í ekkertið, skynja ekkertið.
Þetta er tímalaus vitund handan skiptingar í huglægt og hlutstætt.
Vitneskja um allt án aðgreiningar. (Tilvitnun úr bók Ken Wilber
lýkur).
Krishnamurti er sá sem einna mest hefur fjallað um þennan hlutlausa
næmleika og vakandi athygli. Hann segir á einum stað: „Eitt það
erfiðasta sem við gerum er að skoða, að horfa: að horfa á hvað sem
er án ímyndar um það, að geta horft á ský án fyrri hugmyndatengsla
við skýið, að geta horft á blóm án ímyndar um það, án minninga eða
annars í tenglsum við blómið. Það er vegna þess að þessi
hugmyndatengsl, þessar ímyndir og minningar skapa fjarlægð milli
þess sem skoðar og þess sem skoðað er. Í þessari fjarlægð,
aðskilnaðinum milli áhorfandans og þess sem horft er á, í þessum
skilum býr togstreita mannsins. Það er nauðsynlegt að geta horft án
ímyndarinnar svo að rúmið milli skoðandans og hins skoðaða sé
einfaldlega ekki fyrir hendi. Og K. segir einnig: „Spurningin er,
getum við leyst upp ímyndina, ekki háð tíma, ekki smám saman, heldur
þegar í stað?“ Til þess að geta gert það verðum við að gera okkur
grein fyrir því hvernig ímyndir verða til, en Krishnamurti heldur
því fram að orsök þeirra sé skortur á athygli. Í framhaldi af því
segir hann: „Á því augnabliki sem athyglin er vakandi hverfur öll
mótun og skilyrðing, öllu ímyndunarferlinu lýkur. Það er aðeins
þegar þú veitir ekki athygli sem allt það ferli fer af stað.“
Til að ná þessari hreinu vitund notar Krishnamurti tæki hugans,
tungumálið, ritmálið, ræður og samræður, sem stökkbretti yfir í
þessa hreinu vitund. Hins vegar ræðir hann oft um takmarkanir
hugans. Hann er sammála öðrum andlegum fræðurum að því leyti að
hugurinn einn og sér leysir ekki hnútinn. Hann sé tæki sem gegni
miklu hlutverki í lífi okkar. Hins vegar getur hin sífellda mótun
ímynda og hugmynda sem upp í honum koma, þvælst fyrir okkur í
andlegu tilliti.
Það er ef til vill vegna þess hve háður Krishnamurti er tungumálinu
hve þeir, sem kynna sér kenningar hans rækilega, verða stundum
flæktir í eins konar vitrænu neti. Öll umfjöllun felst í ræðu, riti
og samræðum, sem veldur því að ef til vill festast margir í því sem
átti að leysa þá. Það er vafalaust rétt að menn geta öðlast tæra
vitund umsvifalaust. Hins vegar getur það tekið langan tíma að
undirbúa slíkt augnablik. Assagioli sagði einhvern tíma að
Krishnamurti sé eins og maður sem lagt hefur stiga upp við háan
vegg, gengið upp stigann, sest á vegginn, sparkað stiganum burt og
sagt við fólk: „Stökkvið upp. Það er enginn vandi. Þið þurfið engan
stiga!“ Við finnum oft mótsagnir í boðskap Krishnamurtis. Hann
heldur því oft fram að ekki þurfi neinn tíma að skilja þetta og svo
kemur líka hið gagnstæða fram, t.d er hann svaraði ungu fólki sem
spurði hvort ekki væri besta lausnin sú að taka inn skammt af LSD.
„Engin gullin pilla mun nokkru sinni leysa okkar mannlegu vandamál.
Þau verða best leyst með róttækri byltingu í huga og hjarta
mannsins. Það krefst ötullar, stöðugrar vinnu við að skoða og
hlusta, og vera þannig mjög næmur. Æðsta stig næmleika er æðsti
skilningur og ekkert lyf sem maðurinn hefur fundið upp getur veitt
þennan skilning. Án þessa skilnings er enginn kærleikur og kærleikur
þýðir samskipti. Án þessa kærleiks er maðurinn ekki í jafnvægi.
Hvorki prestarnir né guðir þeirra, heimspekingarnir eða gullna
pillan geta veitt okkur þennan kærleika.“ Hér er ekki verið að boða
neinn „instant“ skilning, heldur krefst það ötullar, stöðugrar vinnu
við að skoða, hlusta og vera mjög næmur. Höfum við kannski litast
ómeðvitað af þeim áhrifum nútímans að allt þurfi að gerast í hvelli,
að við viljum fá tafarlausan skilning, tæra vitund, komast strax í
efstu tröppu og helst alveg upp á vegginn?
Krishnamurti hafði af því töluverðar áhyggjur á síðari hluta ævi
sinnar að fólk virtist ekki skilja hann og sjálfur kvað hann ekki
neinn hafa raunverulega skilið sig til fulls. Í svari sínu nefndi
hann kærleika, nokkuð sem við höfum ekki fjallað um. Ramakrishna
hélt því fram að leið kærleika og tilbeiðslu væri eðlilegust
nútímamanninum. „Kærleikur“ er svo útjaskað orð og hugtak að við
hikum við að nota það án skýringa.. Hvorki Ramakrishna né
Krishnamurti eiga við einhvers konar tilfinningasemi. Eins og
Krishnamurti hefur sagt getur kærleikurinn aðeins birst í hinu
tímalausa núi, kærleikur fortíðar er aðeins minning og kærleikur
framtíðar er hugarburður eftirvæntingar. Hér komum við aftur að sama
punkti og við gerðum áður varðandi vitundina, rúm og tíma. Til að
geta tjáð okkur verðum við að nota tungumálið, þrátt fyrir allar
hættur á tilhneigingum okkar að skapa ímyndir út frá því. Yogarnir
og Vedantaspekingarnir hafa einnig orðið að nota tæki hugans, talað
mál og ritað, en auk notkunar þess eiga þeir mann fram af manni
langa reynslu af iðkun íhugunar af ýmsu tagi oft tengdri
möntruiðkun. Ásamt henni er oft notuð hin myndræna hlið möntrunnar,
yantra eða mandala, einnig blóm sem tákn, fjöll, o.fl., - einmitt
þau tæki hugans sem Krishnamurti varar við - til að komast handan
við hann. Hér er einnig um að ræða hugleiðingu um andans menn, að
ógleymdum orkustöðvum oftast samfara endurtekningu möntrunnar.
Þetta eru eins og kunnugt er forn vísindi sem reynsla er fyrir,
lifandi arfleifð yogaiðkunar um þúsundir ára sem nútímamaðurinn á nú
aðgang að. Í krafti slíkrar iðkunar á tákn eða orkustöðvar verða þær
eins konar gluggar yfir í andlega vídd, rofar til að kveikja ljós
eða íkonar sem við smellum á með músinni á tölvuskjá. Hvort þessar
samlíkingar eiga við rök að styðjast eða ekki þá hafa slík hugræn
tæki verið notuð öldum saman sem tenglar yfir í tæra vitund. Þrátt
fyrir langa reynslu og marga arfleifðina á þessu sviði verður hættan
sem við verðum að vera vakandi fyrir eftir sem áður sú, að hinn
andlegi leitandi eigi til eins og í notkun tungumálsins að festast í
tækinu sem hann hefur búið sér og missi þá sjónar á markmiðinu. Við
viljum ekki lenda í sömu sporum og gestur okkar í upphafi
erindisins, að sefjast yfir í sjálfsdáleiðslu. Fræðarar þessara
aðferða hafa fyrir löngu gert sér grein fyrir þessari hættu og
viðkvæði þeirra er jafnan í því sambandi að við séum þegar dáleidd,
en með hjálp íhugunar sé mögulegt að vakna af dásvefninum.
Þá er einnig mikilvægt að gera sér grein fyrir því að við megum ekki
festast í ímyndum okkar um andlegar leiðir. Sumir líta á andlega
leið eins og veg sem farið er eftir. Allar slíkar ímyndir eru að
sjálfsögðu tilbúningur hugans. Neti- eða iti-viðhorf er ekki aðeins
unnt að samræma, við getum jafnvel iðkað hvorttveggja í sömu
hugleiðslunni. Heiti erindisins er „Neti og iti,“ ekki „Neti eða
iti“. Hagnýta viðhorfið er ekki annaðhvort eða, heldur bæði og.
Hvort sem við iðkum íhugun eða ekki skiptir mestu máli hvernig við
lifum okkar daglega lífi og spurningin verður því eftir sem áður sú,
hvort við viljum mæta atburðum hversdagsins með huga fortíðarinnar
þannig að ekkert nýtt verði til - eða með vakandi og opinni athygli.
Með orðum Krishnamurtis: „Í fáeinum orðum sagt, hugsun er svörun,
andsvar minnisins, fortíðarinnar. Fortíðin getur þýtt fyrir óralöngu
eða fyrir einni sekúndu síðan. Þegar hugsunin er starfandi er hún
þessi fortíð sem virkar sem minni, minning, sem reynsla, sem
þekking, sem tækifæri. Allur vilji er þrá sem byggist á þessari
fortíð og hann beinist að því sem er unaðslegt eða því að komast hjá
sársauka, kvöl. Þegar hugsunin aðhefst eitthvað er hún fortíðin og
þess vegna er ekki um neina nýja upplifun að ræða. Hún er fortíðin
lifandi í nútíðinni og umbreytir sjálfri sér og nútíðinni. Þess
vegna er ekkert nýtt í lífinu með þessum hætti og þegar um er að
ræða að finna eitthvað nýtt, þá verður fortíðin að vera fjarverandi,
hugurinn má ekki vera uppfullur af hugsunum, ótta, munaði eða
einhverju slíku. Aðeins þegar hugurinn er laus við þessa hluti getur
hið nýja orðið til og vegna þess segjum við að það verði að skapast
kyrrð í huganum svo hann starfi aðeins þegar þörf er á - á hlutlægan
og gagnlegan hátt. Allt samhangandi áframhald er hugsun; þegar
samhangandi áframhald ríkir verður ekkert nýtt til. Sérðu hve
mikilvægt þetta er? Þetta er í rauninni spurningin um lífið sjálft.
Annaðhvort lifir þú í fortíðinni eða að þú lifir á algjörlega annan
hátt. Þetta er það sem skiptir höfuðmáli.“
Við skulum gefa höfundi þessara orða lokaorðin með lýsingu hans á
veruleikanum eins og hann skynjaði hann, með tærleika hugans þar sem
allt virðist verða nýtt, þegar hugurinn er laus úr viðjum fortíðar.
„Það hafði rignt alla nóttina og regnið hafði hreinsað burtu hvítt
rykið á laufblöðunum rétt við malarveginn sem hvarf í fjarlægð inn í
móðu fjallanna. Loftið var hreint og tært og ilmur regnvotrar
jarðarinnar fyllti loftið. Á göngu upp eftir veginum kom í ljós
fegurð jarðar og hvernig hin fíngerða útlína bröttu hæðanna bar við
kvöldhimininn. Þetta var kvöld mikillar kyrrðar og fegurðar. Er
horft var út eftir tilkomumiklum klettum með skínandi snjóbreiðum,
hálf dreymandi þar sem engin hugsun bærði á sér, var hún þarna
skyndilega þessi ómælanlega göfgi og blessun. Hún fyllti dalinn á
þessu augnabliki og hugurinn var handan þess mælanlega. Hann bjó
yfir dýpt sem ekki verður með orðum lýst. Og aftur ríkti sakleysi.“
Erindi flutt í Guðspekifélagi Íslands 27. 4. 2001.
Forsíða | Guðspekifélagið | Dagskrá | Greinasafnr | Gangleri | Bókaþjónusta | Bókasafn | Tenglar