Greinar eftir Halldór Haraldsson
Hvað opnar Da Vinci lykillinn?
Samhyggð-kærleikur – grundvöllur friðar og skilnings

Greinar eftir Halldór Haraldsson
Hvað opnar Da Vinci lykillinn?
Samhyggð-kærleikur – grundvöllur friðar og skilnings
Undanfarið ár eða svo hefur bókin Da Vinci Lykillinn eftir
bandaríska rithöfundinn Dan Brown notið slíkra vinsælda víða um heim
að undrum sætir. Bókin hefur að vonum einnig vakið sterk viðbrögð,
bæði jákvæð og neikvæð. Stafar það sennilega ekki vegna þess hve
spennandi söguþráð höfundi hefur tekist að spinna, heldur öllu
líklegar vegna þess hve höfundur snertir trúarlegan bakhjarl,
þ.e.a.s. kristinn bakhjarl margra lesenda á Vesturlöndum og víðar
með óvæntum „staðreyndum“ sem hann kallar svo. Sem meðlimur félags,
sem gjarnan spyr spurninga, þótti mér eðlilegt að kanna málið nánar
og leita svara við áleitnum spurningum sem vakna við lestur
bókarinnar. Þar sem hér ríkir hugsanafrelsi og félagar ekki háðir
kennisetningum trúarbragða eða annarra stofnana, trúralegra eða
pólitískra, getur hvert okkar, eins og Gangleri forðum eða sem
frjálsbornir guðspekisinnar spurt hvers kyns spurninga fordómalaust
og óhrædd, en um leið reiðubúin að taka svarinu, jafnvel óvæntu, ef
það finnst á annað borð og hvernig sem það kann að verða.
Með Da Vinci lyklinum á ég einfaldlega við umrædda bók og hvað hún
opnar hugsanlega. Á undan formála bókarinnar ritar höfundur nokkrar
setningar undir fyrirsögninni „staðreyndir“. Þar er m. a. nefnt
Sionbræðralagið, Opus Dei og þess getið að lýsingar á nokkrum
listaverkum séu sannleikanum samkvæmt. Þessar „staðreyndir“ flettast
inn í söguþráðinn auk fleiri óvæntra fyrirbæra. En leyndardómar Da
Vinci lykilsins eru fleiri þegar að er gáð. Við skulum kanna málið.
Það er fljótlegt að kanna Opus Dei. Það er ekkert leyndarmál að Opus
Dei (sem þýðir verk guðs) er kaþólsk leikmannaregla, sem auðugur
lögfræðingur, José María Escrivá að nafni, sem síðar gerðist
prestur, stofnaði á Spáni árið 1928. Meðlimir reglunnar nú á dögum
teljast um 80 þúsund í öllum heimsálfum með höfuðstöðvum í Róm. Það
er einnig staðreynd, að höfuðstöðvar Opus Dei í Bandaríkjunum eru á
243 Lexington Avenue í New York í risastórri byggingu upp á 17 hæðir
og á að hafa kostað 47 milljónir dollara. Sagt er að meðlimir stundi
meinlætalíf, en hve langt það gengur er erfitt að fullyrða. Til eru
frásagnir nokkurra sem gerst hafa meðlimir á undanförnum árum, en
yfirgáfu regluna vegna öfga á þessu sviði. Meðlimir reglunnar hafa
mótmælt slíkum greinum sem birst hafa í blöðum. Þar koma fram
fullyrðingar gegn fullyrðingum og erfitt að fá á hreint hver
sannleikurinn er. Oft er sagt að sjáist reykur hljóti að finnast
eldur, en aðrir halda því fram að reykur geti komið upp án elds.
Hver veit? Þar sem þetta er nú ekki sú hlið málsins sem við höfum
mestan áhuga á, skulum við snúa okkur að áhugaverðari hliðum þess og
ganga út frá því í leiðinni að lýsingar á listaverkum séu réttar.
Mörgum árum áður en Da Vinci lykillinn kom út kom út bókin Holy
Blood, Holy Grail („Hið heilaga blóð, hinn heilagi gral“) eftir þá
Henry Lincoln, Michael Baigen og Richard Leigh, en þar er sögð
heldur óvenjuleg saga af kaþólskum presti á Suðu-Frakklandi, föður
Berenger Sauniere sóknarpresti við kirkju heilagrar Magdalenu í
Rennes-le-Chateau. Hann bjó við mikila fátækt, en hafði mikinn hug á
að bæta úr málunum og fegra kirkju sína og bæta á allan hátt. Árið
1891 fer hann að taka til hendinni í kirkju sinni og uppgötvar að
steinsúla við altari kirkjunnar er hol að innan og inni í henni
handrit, sum á dulmáli. Eftir þetta grannskoðaði hann vissa staði
kirkjunnar og tók að grafa í kirkjugarðinum kringum kirkjuna. Eftir
að hafa fundið og skrifað hjá sér dularfullar grafskriftir heimsótti
hann biskupinn í Carcassonne í nágrenninu með þessar upplýsingar í
farteskinu. Í framhaldi af þeirri heimsókn sendi biskupinn hann til
kirkjuyfirvalda í París. Eftir þessar heimsóknir verður hann
skyndilega svo ríkur, að hann hefur efni á því að endurnýja kirkju
sína, skreyta hana dýrindis listaverkum, leggja nýjan veg að
þorpinu, leggja vatnsleiðslur og reisa sjálfum sér veglegt hús til
að búa í. Hann hafði haft sem nam 6 pundum í tekjur á ári, en nú
hann eyddi sem nam 10 milljónum punda í kirkjuna. Faðir Sauniere
skýrði aldrei neinum frá því hvernig honum hlotnuðust skyndilega
slík auðævi. Er hann lá á dánabeði sínu árið 1917 og gerði sína
síðust játningu, varð presturinn sem á hana hlýddi svo hneykslaður
að hann neitaði að veita honum syndafyrirgefningu. Hafði faðir
Sauniere fundið fjársjóð, hafði hann fundið gralinn heilaga sem
Kristur drakk úr á síðustu kvöldmáltíðinni eða var leyndardómur hans
svo ógurlegur, að sjálfur páfinn hafi orðið að greiða honum mútur
til að halda honum leyndum? Þá kom fram sagan um, að í handritunum
hafi komið fram, að upprisa Krists hafi verið vandlega tilbúin
blekking og að kaþólska kirkjan hafi greitt honum háar upphæðir
fyrir að þegja. Ennfremur sagði sagan að gagnstætt því sem haldið
hafði verið fram í kristni hafi Jesús kvænst Maríu Magdalenu og að
þau hafi átt börn saman. Síðar á María að hafa siglt til
Suður-Frakklands með börn þeirra sem síðar áttu að hafa giftst inn í
franska konungsætt, þ. e. Merovingianættina sem var við völd frá 500
– 750 e. Kr. Sagt er að Sauniere hafi reyndar sagt ráðskonu sinni
frá leyndardóminum, en er hún seldi hús Saunieres og ætlaði að segja
nýja eigandanum sannleikann í málinu fékk hún heilablóðfall og
missti málið, svo að hún fór með leyndarmálið í gröfina.
Öll löðumst við að leyndardómum og fýsir að uppljúka þeim, afhjúpa
eitthvað sem helst kemur okkur á óvart. En, eins og einhver sagði,
eftir að við höfum afhjúpað leyndardóminn er hann ekki lengur
leyndardómur, hvort sem hann reynist óvæntur eða ósköp venjulegur.
Eftir sem áður erum við sólgin í leyndardóma og eitt er víst, að
þótt unnt sé að afhjúpa ýmsa þeirra varðandi Da Vinci lykilinn er
nóg af þeim eftir. Þið hafið að öllum líkindum tekið eftir því, að
nafnið á prestinum í Rennes-le-Chateau, faðir Sauniere, er einmitt
nafnið sem höfundur Da Vinci lykilins kallar safnvörðinn í
Louvresafninu sem myrtur er í upphafi bókarinnar, afi Sophie, einnar
aðalpersónu sögunnar ásamt táknfræðingnum Robert Langdon. Bakgrunnur
bókarinnar Holy Blood, Holy Grail var sá, að franskur sagnfræðingur,
Gérard de Séde að nafni, hafði skrifað um þessa dularfullu atburði í
Rennes-le-Chateau í bók sem út kom 1967 og var hann því sá fyrsti
sem vakti athygli á þeim. Nokkrum árum áður eða 1962 hafði de Séde
sjálfur gefið í skyn tilveru hins leynda Síonbræðralags (Prieure de
Sion), sem er mikilvægur þáttur í sögu föður Sauniere, í bók sinni
um „öðruvísi sögu“. Árið 1969 las breskur rithöfundur, Henry
Lincoln, í starfi hjá BBC í London bók de Séde frá 1967 um atburðina
í Rennes-le- Chateau og varð forvitinn. Tveim árum síðar heimsótti
hann sögustaðina í Frakklandi og hitti m.a. Gérerd de Séde og saman
leystu þeir dulmál á skjölum sem fundist höfðu í Þjóðarbókhlöðu
Frakklands í París (Biblioteque National) svokölluð Dossiers Secrets
eða leyniskjöl. Í þeim var m. a. að finna ættartölur konunga og sagt
var frá bræðralagi Síons ásamt afar áhugaverðum lista yfir yfirmenn
bræðralagsins, en meðal þeirra voru þekktir menn eins og Leonardo da
Vinci, Botticelli, Isaac Newton, Victor Hugo, Debussy og Jean
Cocteau. Við þetta eykst áhugi Lincolns, hann rannsakar málið næstu
árin og í framhaldi af því kom út bókin Holy Blood, Holy Grail árið
1982 eftir hann og tvo aðra samverkamenn, sagnfræðingana Michael
Baigent og Richard Leigh. Bókin vakti gífurlega athygli á sínum
tíma, mönnum kaþólsku kirkjunnar var ekki skemmt, en almenningur
drakk í sig óvenjulegar og nýstárlegar kenningar um sögu
kristninnar.
Þá kemur fram á sviðið franskur blaðamaður, Jean Luc Chaumeil að
nafni, sem einnig hafði rannsakað hvað hæft væri í því að til væri
hið leynda bræðralag Síons. Því meir sem hann rannsakaði, því
sannfærðari var hann að það væri í raun uppspuni frá rótum. Hann
kannaði feril Gérard de Séde, en einnig félaga hans, Philip
Cherishey markgreifa og Pierre Plantard, sem átti sér skrautlega
fortíð, svo ekki sé meira sagt. Hér er um mjög flókið mál að ræða,
en aðalatriði þess eru þau, að Gérard de Séde var meðlimur kúbbs
súrrealista og átti sennilega hugmyndina, en nafnið Sion tóku þeir
frá fjalli í nágrenni heimabæjar Plantards. Bræðralag Síons var því
í rauninni til, en aðeins sem hreinn tilbúningur þeirra með fáeinum
meðlimum árin 1965-1984 er það var leyst upp. Hins vegar átti
bræðralagið að hafa verið stofnað í Jerúsalem árið 1099, áhrifamikið
í franskri sögu gegnum konungana af Merovingianættinni og öllum
þessum frægu mönnum sem yfirmönnum reglunnar. Chaumeil segist meira
að segja hafa fundið handrit af listanum með yfirmönnum reglunnar
með rithönd Philip Cherishey sem segir að það sé falsað. Þannig
fullyrðir Jean Luc Chaumeil að engin forn ósvikin handrit hafi verið
til (öll fölsuð) og ekkert raunverulegt bræðralag. Aðspurður um
þetta svaraði einn af höfundum Holy Blood Holy Grail, Michael
Baigant, að þessi Chaumeil væri ekki nógu vel að sér í þessu máli.
Sagðist Baigent sjálfur hafa verið tortrygginn er hann og Henry
Lincoln hefðu fengið ábendingar frá Síonbræðralaginu og þeir
grandskoðað umrædd skjöl og verið vissir um að þau væru ósvikin. Hér
er því fullyrðing gegn fullyrðingu. Varðandi auðævi föður Sauniere
uppgötvaðist síðar, að hann hafði ekki fundið fjársjóð, hann mútaði
aldrei kaþólsku kirkjunni, heldur hafði hann aflað fjár með því að
gera fjölda efnaðs fólks andlega „greiða“ svo sem með fyrirbænum
gegn gjaldi, sem var í raun ekki beinlínis siðlegt, en aflaði honum
tekna. Í húsi hans fannst síðar gríðarlegt magn kvittana fyrir
þessari iðju hans.
Það sem gengur eins og rauður þráður í gegnum Da Vinci bók Dan
Browns er leitin að hinum heilaga gral. Sett hefur verið fram fram
sú kenning, að gralinn sé ekki bikar eins og venjulega hefur verið
haldið fram, heldur blóð Krists, sem á frönsku var skrifað san graal
eða san greal, en enn eldri ritháttur á að hafa verið sang real, sem
þýðir heilagt blóð. Hvað er og hvar er þá hið heilaga blóð? Jú,
samkvæmt þessari kenningu á það að vera móðurlíf Maríu Magdalenu sem
var þunguð eftir eiginmann sinn, Jesús, þ.e. að gralinn sé því miklu
stórkostlegri en dauður bikar, þótt með táknrænu blóði Krists sé,
heldur lifandi kona sem ber fóstur frelsarans og á eftir að geta af
sér m. a. ættir konunga, þ.e. Merovingianættina á Frakklandi. Eitt
af þeim vísbendingum sem bent hefur verið á er hið fræga listaverk
Leonardos da Vincis, kvöldmáltíðin heilaga, sem hann málaði á vegg
kirkjunnar Santa Maria della Gracia í Milanó. Bent hefur verið á, að
sá lærisveinn sem situr til hægri við frelsarann og á að vera
lærisveinninn Jóhannes, sé í raunninni María Magdalena. Þetta átti
Leonardo að vita þar sem samkvæmt kenningum þessum átti hann að hafa
verið einn af yfirmönnum Síonbræðralagsins. Jesús hallar sér frá
Maríu og myndar þannig vaff-laga bil á milli sín og hennar sem gæti
verið táknrænt fyrir bikar, gral eða móðurlíf. Bilið milli þeirra
opnar fyrir útsýn í bakgrunn þriggja stórra glugga sem mynda stafinn
M, sem gæti staðið fyrir María, Magdalena eða matrimonium. Málverk
þetta hafa margir grandskoðað allt frá því að Da Vinci lykillinn kom
út og finnst mörgum lærisveinninn á hægri hönd Jesú ekki sannfærandi
sem karlmaður. Í fyrsta lagi eru allir lærisveinarnir skeggjaðir
nema þessi, og þótt Jóhannes eigi að vera fínlegur og jafnvel
kvenlegur ungur maður finnst mörgum hann heldur ekki sannfærandi sem
slíkur. Sumir sérfræðingar telja þetta vera Jóhannes svo og að
sjálfsögðu allir prelátar kaþólsku kirkjunnar, aðrir sjá þarna
kvenpersónu. Hér greinir menn sem sagt á og ekkert endanlegt svar að
finna enn við þessari gátu.
En við þurfum ekki á svo vafasamri sönnun að halda varðandi Maríu
Magdalenu. Margir sjónvarpsþættir hafa verið gerðir um þetta efni og
viðtöl við helstu sérfræðinga sem tengjast þessu málefni. Einn
virtasti sérfræðingur sem oftast er fenginn til svara er dr. Elaine
Pagels, prófessor í sögu frumkristni við Princeton háskólann í
Bandaríkjunum. Hún hefur sagt í slíkum viðtölum, að bók Dan Browns
sé vissulega spennandi skáldsaga, einnig sé margt spennandi varðandi
ýmsa leyndardóma, leynileg bræðralög o. fl. þ. h., en fyrst og
fremst sé hún þakklát höfundi fyrir að opna lang mest spennandi
efnið af öllum, sem er hennar sérsvið, nefnilega fróðleik um
frumkristni, sem komi fólki verulega á óvart.
Árið 1945 fann egypskur bóndi forn handrit í leirkrukku af tilviljun
rétt hjá þorpinu Nag Hammadi við rætur Jabal-al Tarif fjalls um 300
mílur frá Kaíró. Þetta reyndust vera 52 rit frá frumkristni rituð á
koptísku, þ.e. þýðingar á handritum upphaflega rituðum á grísku, og
var þeim endanlega komið fyrir á koptíska safninu í Kaíró. Fundur
þessi kom á óvart og leikur enginn vafi á því að hann á eftir að
hafa feikileg áhrif. Er fréttist um fundinn fóru nokkrir nemendur í
Harvard háskóla, þar sem Elaine Pagels stundaði nám, að læra
koptísku til að geta lesið handritin sem fundust. Þetta var mikið
verk og eftir að ónefndir aðilar höfðu reynt að tefja verkið með
ýmsum hætti og af ástæðum sem koma hér síðar í ljós, komu rit þessu
loksins út í enskri þýðingu árið 1977. Var próf. Pagels í hópi
þýðenda og gjörþekkti því allt þetta mál. Hefur hún hlotið einróma
lof fyrir vönduð og vísindaleg vinnubrögð. Hún fæddist 1943 í
Kaliforníu, útskrifaðist með B.A. próf frá Stanford háskóla 1964 og
1965 með M.A.próf. Eftir það stundaði hún nám við Harvard háskóla
þar sem hún tók doktorspróf í heimspeki og tók jafnframt þátt í
þýðingu Nag Hammadi handritanna. Nú er hún – eins og áður sagði –
prófessor í frumkristnifræðum við Princeton háskólann. Bók hennar,
Gnostísku guðspjöllin, hefur hlotið margs konar verðlaun og
viðurkenningar. Síðan hefur hún skrifað fleiri bækur sem einnig hafa
hlotið frábærar viðtökur eins og t.d. Tómasarguðspjall.
Fyrsta spurning okkar hlýtur að vera: Hvers vegna voru handrit þessi
falin allan þennan tíma, í yfir 1600 ár? Því er til að svara að
þegar á 2. öld e. Kr., er kirkjan var smám saman að festa sig í
sessi sem stofnun, urðu miklar deilur og reyndu valdamenn kirkjunnar
að brenna þessi rit eða eyðileggja til að koma í veg fyrir
útbreiðslu þeirra vegna þess að innihald þeirra var þeim ekki að
skapi, þar sem það studdi ekki valdabaráttu þeirra. Þarna er að
finna bækur eins og Tómasarguðspjall, Filipusarguðspjall, Guðspjall
sannleikans, Launbók Jakobs, Opinberun Péturs, Guðspjall Maríu
(Magdalenu) o.fl. 52 bækur alls. Irenæus biskup í Lyons skrifaði rit
sem hann kallaði Eyðileggingu og kollvörpun falskrar þekkingar þar
sem hann ræðst á þessi rit sem hann segir vera full af guðlasti og
villutrú. Hins vegar litu höfundar þessara rita ekki á sig sem
villutrúarmenn, þeir voru það aðeins í augum valdamanna kirkjunnar.
Eftir að Konstanínus keisari veitti kristnum mönnum trúfrelsi árið
313 e. Kr. og kristni varð ríkistrú í Rómaveldi árið 380 gáfu
biskuparnir, sem áður höfðu verið ofsóttir, nú skipanir. Nú var
valdið þeirra. Það var glæpur að eiga bækur sem ekki samrýmdust
kenningum kirkjunnar og bókabrennur urðu tíðar. Um páskaleytið árið
367 gaf erkibiskupinn í Alexandríu út þá skipun til munka á
Egyptalandi, að þeir skyldu eyðilegga eða brenna þessi óæskilegu rit
sem munkunum féll svo vel við, en þeir mættu eiga 27 rit sem talin
voru upp. Var þetta í fyrsta sinn sem þau 27 rit sem síðar mynduðu
Nýja testamentið voru talin upp. Þess má geta hér, að sérfræðingar á
þessu sviði játa, að þeir vita í rauninni ekki hverjir voru höfundar
þessara guðspjalla Nýja testamentisins. Þeir hafa verið nefndir
eftir tveimur postulum, Matteusi og Jóhannesi og fylgjendum þeirra,
Markúsi og Lúkasi. En hverjir hinir raunverulegu höfundur voru er
ekki vitað.
Þessir kristnu menn í frumskristni, sem skrifuðu þessi rit sem
kirkjan bannaði og leit á sem villutrúarrit, hafa síðar verið
nefndir gnostíkerar. Gnostík kemur af gríska orðinu gnosis sem þýðir
þekking, ekki þekking á efnislegum staðreyndum, heldur þekking sem
fæst með innsæi, reynslu af andlegum veruleika. Ráðamenn kirkjunnar
lögðu áherslu á hina formlegu hlið, kreddur, kennivald, boð og bönn
– allt sem styrkti kirkjuna sem stofnun. Allt sem laut að innra lífi
einstaklingsins, trúarleg eða andleg reynsla styrkti einstaklinginn,
gerði hann sjálfstæðari og því hættulegan því kennivaldi sem kirkjan
boðaði. Í stað þess að fara eftir kenningum kirkjunnar, vera hlýðinn
safnaðarmeðlimur og forðast sjálfstæða hugsun, voru gnostíkerarnir
alger andstæða, þeir hugsuðu sjálfstætt og sóttust eftir því að
öðlast gnosis eða innsæisþekkingu, sem þýddi í raun og veru að fá
beina reynslu af andlegum veruleika. Þetta var ekki ólíkt
hugsunarhætti í indverskri heimspeki þar sem það að þekkja og
upplifa atman (æðri vitund, æðra sjálf) var um leið að þekkja
brahman (upplifa alheimsvitund). Hafa sumir fræðimenn talið ekki
ósennilegt að gnostíkerar hafi orðið fyrir áhrifum frá Indlandi, þar
sem verslunarleiðir voru að opnast við Indland á þeim tíma sem
gnostíkin kemur fram eða ca. 80 – 200 e.Kr. Um og eftir árið 200 er
kirkjan að mestu orðið stofnun með sitt klerkaveldi, biskupa, presta
og djákna sem litu á sig sem verndara hinnar einu „sönnu trúar“.
Mönnum var gert ljóst að það var enga sáluhjálp að finna utan
kirkjunnar. Aðeins meðlimir kirkjunnar voru sannlega kristnir. Hefur
kirkjan jafnan reynt að gera hin gnostísku guðpjöll tortryggileg, og
þá ekki aðeins hin kaþólska, og m. a. sagt að gnostíkerar hafi ekki
verið beinlínis kristnir, heldur hafi þeir verið undir sterkum
áhrifum frá grískri heimspeki og því ekki kristnir. Nú þegar við
höfum öll þessi rit í enskri þýðingu getur hver og einn kannað málið
sjálfur. Nefnt hefur verið, að hefðu þessi guðspjöll fundist fyrir
nokkur hundruð árum, hefðu þau örugglega verið brennd eða eyðilögð.
Það er því forsjóninni fyrir að þakka, að þau fundust á tíma, þegar
við njótum hugsanafrelsis og vald kirkjunnar nær ekki lengur að fela
sannleikann. Gnostíkerarnir tjáðu hugmyndir sem kirkjunnar menn
hryllti við. Þær helstu voru:
1) Þeir viðurkenndu ekki syndina sem orsök þjáninga.
2) Þeir litu ekki á guð sem karlkyns eingöngu, heldur bæði föður og
móður.
3) Upprisu Krists álitu þeir táknræna og tóku hana ekki bókstaflega.
4) Fram kemur í sumum ritum þeirra að þeir lýsa yfir vanþóknun á
kaþólskum mönnum sem gorta af því að leyndardómur sannleikans
tilheyri þeim einum, þótt augjóst sé að þeir skilji ekki sjálfir
leyndardóminn.
5) Gnostíkerar trúðu á endurholdgun mannssálarinnar, ekki á eitt líf
og að því loknu annaðhvort himnaríki eða helvíti.
1. Hin gnostíska hreyfing átti vissa hluti sameiginlega með
sállækningaaðferðum nútímans, t. d. að því leyti að þeir töldu
vanþekkingu en ekki synd orsök þjáningar. Ef litið er á vanþekkingu
sem orsök, er það undir hverjum einstaklingi komið að bæta sig, afla
sér þekkingar og reynslu í skóla lífsins. Ef litið er hins vegar á
syndina sem orsök gefur það kirkjunni sem stofnun og embættismönnum
hennar vald yfir einstaklingnum, þar sem þeir einir geta veitt
fyrirgefningu í skriftastólnum eða með aflátsbréfi sem var nú ekki
lítil tekjulind fyrir kirkjuna á sínum tíma. Í öllu falli á þá
einstaklingurinn allt undir valdi kirkjunnar og bannfæring
yfirvofandi ef menn sjá ekki að sér, sem þýðir eilíf útskúfun og
glötun sáluhjálpar.
2. Í tengslum við þau gnostísku viðhorf að guð væri bæði karl- og
kvenkyns, faðir/móðir, áttu karlar og konur hjá þeim jafnan rétt.
Tertúllíanusi kirkjuföður frá Norður-Afríku var sérstaklega illa við
að konur skyldu skipa sama sess og karlar og fór um það háðulegum
orðum. Hann sagði m. a.:
„Þær kenna, taka þátt í samræðum, þær reka út illa anda, þær leggja
hendur yfir menn til lækninga – og hann grunar jafnvel að þær
skíri“, en það þýddi hið sama og þær kæmu fram sem biskupar. Í
gnostíska ritinu Pistis Sophia (trúarviska, þekkingarvísdómur) kemur
fram, að Pétur postuli hafi kvartað yfir því við Jesús, að María
Magdalena væri of ráðandi í samræðum við Jesús og viki úr stað hinum
réttmæta forgangsrétti Péturs og hinna postulanna. Hvatti hann Jesús
til að þagga niður í henni, en var þegar í stað ávítaður. Síðar
játar María fyrir Jesú að hún dirfist varla að tala við hann
frjálslega, því að, með hennar eigin orðum: „Pétur kemur mér til að
hika, ég er hrædd við hann, því hann hatar kvenfólk.” Jesús svaraði,
að hverjum þeim, sem andinn blési í brjóst, væri fyrirskipað að
tala, hvort sem hann væri maður eða kona.
3. Gnostikerar afneituðu ekki upprisunni, en þeir höfnuðu
bókstaflegri túlkun hennar sem „viðbjóðslegri, ógeðfelldri og
óhugsanlegri.“ Upprisan þýddi samkvæmt þeirra kenningum það, að hver
einstaklingur upplifi Krist í andlegum skliningi, í andlegri
upplifun, annaðhvort draumi, sýn eða andlegri uppljómun. En hvers
vegna lögðu kirkjunnar menn svo mikla áherslu á líkamlega upprisu og
höfnuðu öllum öðrum skoðunum? Við nánari athugun sjáum við, að hin
líkamlega upprisa þjónar einnig stjórnmálalegum tilgangi, því hún
veitir um leið vissum aðilum vald sem arftökum Péturs postula. Þaðan
kemur hin svokallaða „successio apostolica“ eða hin postullega
vígsluröð, sem veitir páfanum það vald sem hann hefur haft allt til
þessa dags.
4. Í upphafi Guðspjalls Maríu (Magdalenu) eru lærisveinarir að
syrgja Jesús eftir dauða hans og óttast um eigið líf. Þá stendur
María Magdalena upp, hughreystir þá og minnir þá á ævarandi nálægð
Krists: „Grátið ekki og syrgið ekki og efist ekki, því að náð hans
mun verða með ykkur algjörlega og mun vernda ykkur.“ Þá biður Pétur
hana að rifja upp orð frelsarans sem hún man, en þeim til mikillar
undrunar segir hún ekki frá því, heldur segir hún frá því sem
Drottinn hafði sagt henni í sýn. Þá bregðast þeir við Andrés og
Pétur og segjast ekki trúa því sem hún segir. Þá grætur María og
segir við Pétur: „Bróðir minn, Pétur, hvað heldur þú? Heldur þú að
ég hafi hugsað þetta sjálf í hjarta mínu? Heldur þú að ég sé að
ljúga um frelsarann?“ Þá svarar Leví, lærisveinn Jesú, og segir við
Pétur: „Pétur, þú hefur ávallt verið skapmikill... Ef frelsarinn
virti hana, hver ert þú að neita henni?“ Eftir að hafa þannig fengið
uppreisn fer María út með hinum lærisveinunum. Hér kemur greinilega
fram, hve Pétur virðist túlka sjónarmið rétttrúnaðar, bókstafstrúar
sem efast um þá sem „sjá frelsarann“ í sýn. María virðist á hinn
bóginn fulltrúi gnostískra sjónarmiða sem telur sig upplifa
áframhaldandi návist hans. Í gnostísku ritunum kemur skýrt fram, að
samband Maríu og Jesús var mjög náið. Í Filippusarguðspjalli er þess
meira að segja oft getið, að Jesús hafi kysst Maríu á munninn. Því
spurðu lærisveinarnir hvort hann elskaði hana meira en þá.
Um 500 árum síðar kallar Gregoríus páfi, nefndur hinn mikli, Maríu
Magdalenu skækju, sem loðaði við nafn hennar æ síðan þar til nýlega,
að fulltrúar kaþólsku kirkjunnar hafa játað, að þetta hafi verið
mistök. En um hugsanlega ferð Maríu Magdalenu yfir Miðjarðarhafið
til Suður-Frakklands er hvergi getið í gnostísku ritunum, hvað þá að
hún hafi þá verið barnshafandi.
5. Dr. Pagels ræðir ekki endurholdgun sem slíka í bók sinni
Gnostísku guðspjöllin, en víða kemur fram að gnostíkerar trúðu á
endurholdgun. Í áðurnefnda gnostíska ritinu Pistis Sophia er að
finna allmikið efni um endurholdgun. Í einum kafla er Kristur að
kenna lærisveinum sínum hve alvarlegar afleiðingar slæmra
persónugalla geta orðið í næsta lífi. Hjá einstaklingi, sem bölvar
öðrum, mun slæm samviska naga hjartarætur hans í næsta lífi. Hann
óskaði öðrum vandræða og nú fær hann þau yfir sig sjálfur.
Hrokafullur persónuleiki gæti fengið líkamleg lýti í næsta lífi og
verður því litið niður á hann. Á sama hátt segir Kristur að hver
löstur hafi sínar afleiðingar. Áður en slík persóna endurfæðist mun
hún – eins og reyndar flestir – drekka óminnisdrykkinn og getur því
ekki munað fyrri æviskeið eða hvað gerðist á tímskeiðinu á milli
jarðvistanna.
Lærisveinninn Jóhannes velti því fyrir sér, hvort einstaklingur eigi
sér nokkra von, sem drýgt hefur allar syndir og beitt aðra ranglæti,
en hefur að lokum fundið leyndardóma ljóssins. Er mögulegt fyrir
hann að frelsast?
Frelsarinn svarar: „Slíkur einstaklingur sem drýgt hefur allar
syndir og beitt aðra ranglæti og finnur leyndardóma ljóssins, ræktar
þá og uppfyllir þá og hættir að syndga, hann mun sannarlega erfa
fjársjóð ljóssins.”
Jóhannes heldur áfram og spyr: „Hvað gerist hjá einstaklingi sem
ekki hefur syndgað, hefur ávallt gert góðverk, en hefur samt ekki
fundið leyndardómana? Slíkur einstaklingur, segir Kristur, drekkur
ekki óminnisdrykkinn fyrir fæðingu. Hann fær miklu fremur bikar
fylltan viskuhugsunum og tærum huga. Síðan fæðist hann í líkama sem
getur hvorki sofið né gleymt vegna bikars hins tæra huga sem honum
var gefinn. Hann mun vekja hann til að leita og spyrja um
leyndardóma ljóssins uns hann finnur þá vegna ákvörðunar
Ljósmeyjunnar og erfa ljósið að eilífu.“ Kristur leggur á það
áherslu aftur og aftur, að æðsta takmarkið sé svo stórkostlegt, að
þótt við losnum við syndina geti það eitt ekki tryggt þessa
fullkomnun. Þekkingin á leyndardómunum er frumskilyrði.
Það eru þessir leyndardómar sem eru þess virði að uppgötva.
Gnostíski kennarinn Valentinus benti á, að Jesús kenndi lærisveinum
sínum hluti, sem hann hélt leyndum fyrir öðrum. Þetta kemur fram í
Markúsarguðspjalli (4:11): „Yður er gefinn leyndardómur guðs ríkis.
Hinir, sem fyrir utan eru, fá allt í dæmisögum, að sjáandi sjái þeir
og skynji ekki og heyrandi heyri þeir og skilji ekki ...“ . Því er
haldið fram, að gnostíkerarnir hafi varðveitt þessa leyndu kenningu
Jesú.
Það sem við uppgötvum við þessa athugun og sér í lagi við lestur
hinna gnostísku guðspjalla er, að það átti að eyðileggja þau þegar í
frumkristni, en kirkjunni tókst það ekki. Hún hefur reynt að halda
sannleikanum leyndum í 2000 ár. Öllum að óvörum fundust þau árið
1945 og nú geta allir lesið þau. Það er því rétt í Da Vinci
lyklinum, að kaþólska kirkjan hafi reynt hvað hún gat til að koma í
veg fyrir að viss þekking sæi dagsins ljós, en þekkingin sem
lykillinn opnar er miklu eldfimari en okkur grunaði. Hvers vegna
voru þessi rit bönnuð, hvað gerði þau svona hættuleg? Við skulum
gera okkur ljóst, að það er grundvallarmunur á kenningum kirkjunnar
og gnostíkinni. Kirkjan segir sáluhjálp aðeins geta gerst fyrir
milligöngu kirkjunnar, en samkvæmt gnostíkinni er hver einasta
mannssál tengd guði gegnum sitt æðra sjálf. Gnostíkin er ekki
tvíhyggja eins og oft er nefnt. Í bók sinni The Gnostic Gospels
segir dr. Pagels á bls. 31 m.a.: „Ýmsir fræðimenn nú á dögum hafa
talið gnostíkina vera háspekilega tvíhyggju, en Klemens frá
Alexandríu segir að einnig hafi verið boðuð gnostík sem ekki hafi
átt neitt skylt við tvíhyggju. Handritafundurinn í Nag Hammadi sýnir
svo ekki verður um villst að kenning Valentínusar var í engu í ætt
við tvíhyggju.“ Nú fyrst geta þeir, sem stimplaðir voru
villutrúarmenn, „talað frjálst“, þ. e. gegnum útgáfu gnostísku
ritanna. Og hver og einn getur spurt sig hvort hann vill vera
hlýðinn sauður, heilaþveginn af kenningum stofnunar, sem margsinnis
hefur gerst sek um óheiðarleg vinnubrögð, eða að fá að vera hann
sjálfur, geta hugsað sjálfstætt og geta samt öðlast þekkingu á
leyndardómunum. Þótt við uppgötvum einhverja af þeim leyndardómum Da
Vinci lykilsins, sem fjallað er um í bókinni, eru þeir þrátt fyrir
allt að mestu leyti á sviði táknfræði, hugvísinda eða sagnfræði. En
leyndardómar ljóssins hjá gnostíkerum eru hins vegar þeir lifandi
leyndardómar sem hver og einn getur leitað og hver á sinn hátt getur
reynt að uppgötva og upplifa fyrir sjálfan sig.
Erindi í Guðspekifélagi Íslands
föstudaginn 4. mars 2005.
Forsíða | Guðspekifélagið | Dagskrá | Greinasafnr | Gangleri | Bókaþjónusta | Bókasafn | Tenglar