I UM ÞRÓUN BÚDDISMANS
1.0 TVÆR HEIMSPEKIHEFÐIR.
1.1 ÞRÓUN BÚDDISMANS.
1.2 ÁRÉTTUN VIÐHORFA.
1.3 ÞÖGN BÚDDA.
1.4 MADHYAMIKA.
1.5 FRELSIÐ.
1.0 TVÆR HEIMSPEKIHEFÐIR.
Í indverskri heimspeki hafa ríkt tvær meginstefnur eða
hefðir. Önnur þeirra á rætur í atma kenningu Upanishada, hin
í anatma kenningu Búddismans. Veruleikinn er skilinn á
tvennan aðgreindan og ósamrýmanlegan hátt. Upanishödurnar og
heimspekikerfið, sem fylgt hefur Brahman hefðinni, telja
veruleikann vera innri […]
