
Hús Guðspekifélagsins
Um Íslandsdeild
Guðspekifélagsin
Um stofnun
Guðspekifélagsins
Verkefnaval
er alþjóðlegt félag, stofnað 1875 í New York. Höfuðstöðvar þess eru í Adyar í Chennai (Madrasfylki) á Indlandi og það starfar í deildum um heim allan. Fyrsta grein Guðspekifélagsins á Íslandi var stofnuð í Reykjavík 17. nóvember 1912. Íslandsdeild Guðspekifélagsins var stofnuð 1921
1. Að stuðla að bræðra-
og systralagi alls mannkyns án tillits til trúarskoðana, uppruna,
kynferðis eða hörundslitar.
2. Að hvetja fólk
til að kynna sér og bera saman vísindi, trúarbrögð, heimspeki
og listir.
3. Að rannsaka óskilin
náttúrulögmál og mátt mansandans.
Einkunnarorð félagsins eru:
Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri.
Lífspekifelagið, The Theosophical Society, er alþjóðlegur
félagsskapur sem helgar sig alheims bræðralagi mannkyns og
hvetur til rannsókna og samanburðar trúarbragða, heimspeki
og náttúruvísinda í þá veru að maðurinn megi betur skilja
sjálfan sig og stöðu sína í alheiminum. Lífspekifélagið
stendur fyrir algeru hugsana og trúfrelsi einstaklingsins.
Lífspekifélagið boðar engar kenningar en hvetur til hugsana-
og skoðanafrelsis. Því eru þær hugmyndir sem hér koma fram
ekki á ábyrgð félagsins eða bindandi fyrir félagsmenn, en
settar fram til að hvetja til umræðu og stúdíu um sjálfsrækt
og andlega iðkun.
Starfsemi félagsins fer fram á fundum, með fyrirlestrum,
umræðum, í námshópum og námskeiðum og er öllum opin
Í Lífspekifélaginu geta menn kynnst á tiltölulega stuttum tíma,
straumum og stefnum í andlegum málum, þeir frétta um athyglisverðar
bækur og tímarit og kynnast öðru fólki sem hefur svipuð áhugamál,
þeir læra af reynslu annarra og miðla um leið sínum eigin skilningi.
Lífspekifélagið er ekki varnargarður utan um einhverjar kenningar
eða átrúnað; það boðar enga kenningu og getur þar af leiðandi ekki
sóst eftir áhangendum. Það er því ekki trúfélag né “dulspekifélag"
eins og margir virðast halda. Félagið er samtök venjulegs fólks sem
hefur það óvenjulega áhugamál að vilja kanna leyndardóma mannsins og
vitundar hans, fólks sem vill nema eftir sinni eigin getu og í
samræmi við eigin persónulega hæfileika. Forsenda slíkrar leitar eða
náms er innra frelsi, frelsi til að leita, sem er að vera óbundinn
af trúarsannfæringu og frelsi til að tjá skilning sinn.
Lífspekifélagið er vettvangur einstaklinga sem vilja sameinast um
spurningar en ekki um svör,
sem vilja leita eftir skilningi en ekki sannfæringu.
Enda þótt Lífspekifélagið sé reiðubúið til samstarfs við öll önnur samtök, sem hafa slík markmið og starfsemi að samrýmst geti grundvallar-hugsjónum þess, er það og hlýtur alltaf að vera algerlega óháð þeim, lýtur engum öðrum markmiðum en sínum eigin og kappkostar að efla alla starfsemi sína á sem breiðustum grundvelli og eftir sem flestum leiðum, svo því auðnist á þann hátt að nálgast eigið mark og mið, svo sem fram kemur í stefnuskráratriðum þess og þeirri guðlegu visku sem beinlínis er á drepið í nafninu Lífspekifélagið. Þar eð allsherjar bræðralag og viska eru óskilgreind og á allan hátt ótakmörkuð, og þar eð algert frelsi fyrir hvern og einn félagsmann ríkir í hugsun og starfi, leitast félagið við að viðhalda hinum ákveðnu sérkennum sínum með því að forðast algerlega tengsl við önnur félög og láta ekki samkenna
Forsíða | Guðspekifélagið | Dagskrá | Greinasafnr | Gangleri | Bókaþjónusta | Bókasafn | Tenglar