Um Íslandsdeild
Guðspekifélagsin
Um stofnun
Guðspekifélagsins
Verkefnaval
Fundir og námskeið
Í Reykjavík hefur vetrarstarf Guðspekifélagsins birst almenningi
undanfarna áratugi í formi funda og námskeiða í húsi félagsins
Ingólfsstræti 22, frá byrjun október og fram til 8. maí. Opinberir
fundir eru á hverju föstudagskvöldi kl. 20,30. Þar eru haldin erindi eða
samræður um fjölbreytt efni er snertir andlega viðleitni, heimspeki,
visindi, og listir af
félagsmönnum eða gestafyrirlesurum. Hugleiðslustund er vikulega og
hugrækt fyrir byrjendur hefur verið í formi námskeiðs eða opinna
funda undanfarin ár. “Opið hús" hefur verið á laugardögum, milli kl.
15 og 17. Einnig hafa verið í gangi innri fundir, þar sem fjallað er
um valið efni nokkra fundi eða vetrarlangt. Öllum er heimil þátttaka
í þessum fundum endurgjaldslaust. Reglulegt fundarstarf hefur verið
í gangi yfir veturinn á Akureyri, og Kópavogi , hálfsmánaðarlega eða
sjaldnar.
Sumarskóli
Yfir sumarmánuðina liggur starfið niðri að mestu nema hvað
sumarskóli er haldinn, venjulega í lok júní. Á sumarskólanum hafa
félagar tækifæri til að koma saman til náms, iðkana og samveru.
Dagskráin stendur frá morgni til kvölds og inniheldur hugleiðslu,
erindi, umræður og frjálsar samverustundir. Oft eru fengnir til
erlendir fyrirlesarar á sumarskólann.
Gangleri, bækur og útgáfustarfsemi
Íslandsdeildin gefur út tímaritið Ganglera tvisvar á ári, hvort
hefti er 96 bls. Áskrifendur eru mun fleiri en félagsmenn. Deildin
rekur bókaþjónustu sem pantar erlendar bækur fyrir félagsmenn.
Deildin á bókasafn með fræðibókum um andleg málefni. Bókaútgáfa
deildarinnar, Hliðskjálf, hefur gefið út nokkrar bækur. Þá gefur
deildin út lítið félagsblað Mundilfara, sem kemur út 4 til 5 sinnum
á ári og flytur fréttir af starfseminni.
Innganga
Inntökuskilyrði í félagið eru að einstaklingurinn verður að hafa náð
lögaldri og með undirskrift sinni á inntökubeiðni lýsir hann yfir
samúð með eða er samþykkur stefnuskrá þess. Hann getur þess hvort
hann óskar að vera skráður í sérstaka stúku eða vera utan þeirra og
skuldbindur sig til að fara eftir lögum félagsins. Deildarforseti
gefur síðan út félagsskírteini í umboði forseta félagsins. Sá sem
gengur í Guðspekifélagið hefur ekki gert annað en lýsa yfir áhuga
sínum á að kynnast innihaldi trúarbragðanna, meiningum
heimspekistefna og niðurstöðum vísindarannsókna, ásamt því að gera
einstaklingsbundnar athuganir á öflum og möguleikum sem leynast
kunna með manninum. Samt er þetta síður en svo tilfinningalaus
fræðistarfsemi, því félaginn lýsir einnig viðurkenningu á allsherjar
bræðralagi mannkynsins.
Félaginn og heimurinn
Guðspekifélaganum er ekki sama hvernig heimurinn er. Hann er í senn
áhorfandi og þátttakandi. Hann vill skoða mannlífið, einkum
mannshugann, eiga þátt í myndun jákvæðra viðhorfa, því allir menn
eru fyrst og fremst menn þrátt fyrir ýmsa meira eða minna tilbúnar
skiptingar. Enginn einn getur skorast undan hlutdeild sinni í ábyrgð
heildarinnar - af því hann lítur á bræðralagið sem staðreynd.
Hvers vegna félagsaðild?
Í hundrað tuttugu og sjö ár hafa guðspekisinnar um heim allan stutt
starf þess og tilgang. Margir ganga í félagið til að taka þátt í
viðleitni þess og til að verða hluti alheimsfélagsskapar sem tengir
saman fólk af mismunandi menningu, trú og þjóðerni. Félagsaðild
býður hins vegar upp á fleira en tækifæri til að láta gott af sér
leiða. Hún gefur stórkostlegt tækifæri til náms, með því að félagið
kappkostar ávallt að leggja félagsmönnum til fágætt úrval andlegs
námsefnis.
Engin kenning er sannleikanum æðri
Í Guðspekifélaginu geta menn kynnst á tiltölulega stuttum tíma,
straumum og stefnum í andlegum málum, þeir frétta um athyglisverðar
bækur og tímarit og kynnast öðru fólki sem hefur svipuð áhugamál,
þeir læra af reynslu annarra og miðla um leið sínum eigin skilningi.
Guðspekifélagið er ekki varnargarður utan um einhverjar kenningar
eða átrúnað; það boðar enga kenningu og getur þar af leiðandi ekki
sóst eftir áhangendum. Það er því ekki trúfélag né “dulspekifélag"
eins og margir virðast halda. Félagið er samtök venjulegs fólks sem
hefur það óvenjulega áhugamál að vilja kanna leyndardóma mannsins og
vitundar hans, fólks sem vill nema eftir sinni eigin getu og í
samræmi við eigin persónulega hæfileika. Forsenda slíkrar leitar eða
náms er innra frelsi, frelsi til að leita, sem er að vera óbundinn
af trúarsannfæringu og frelsi til að tjá skilning sinn.
Guðspekifélagið er vettvangur einstaklinga sem vilja sameinast um
spurningar en ekki um svör,
sem vilja leita eftir skilningi en ekki sannfæringu.
ÁHUGASVIÐ GUÐSPEKISINNANS
Allt frá stofnun félagsins árið 1875 hefur megin markmið þess verið
að kynna hugmynd, sem var afar nýstárleg á þeim tíma - allsherjar
bræðralag mannkynsins. Síðan þá hefur hugtakið "einn heimur" náð
mikilli útbreiðslu meðal hugsandi fólks. Mikill hluti mannkynsins
getur nú fallist á fyrsta stefnuskráratriði félagsins, en allt of
oft er aðeins um "samþykki í orði" að ræða.
Heimurinn á augljóslega ennþá erfiða tíma framundan og höfuð markmið
guðspekisinnans er enn sem fyrr að ýta undir gagnkvæman skilning
meðal fólks af öllum menningarheildum, þjóðerni, heimspekihugsun og
trúarbrögðum. Önnur markmið guðspekisinnans eru meðal annars:
Umburðarlyndi gagnvart öllum trúarbrögðum.
Einstaklingsbundið frelsi í leitinni að sannleikanum.
Einstaklingsbundin ábyrgð á öllum sviðum tilverunnar.
Iðkun hugleiðingar og heilbrigt líferni.
Kærleiksrík þjónusta í þágu annarra.
Guðspekifélagið reynir að forðast kreddur og óbilgjarnar skoðanir,
en lítur í staðinn til uppsprettu einingar handan alls mismunar.
Félagar þess um allan heim sameinast þrátt fyrir mismunandi trú og
menningaruppruna í sameiginlegri leit að tilgangi lífsins.
Þegar lesandi þessarra síðna lítur yfir hina mismunandi kafla, sér
hann væntanlega að mest af efninu vísar til þeirra
grundvallarhugmynda, að lífið sé eining, að allir hlutir séu
samtengdir og allt sé á langri þróunarbraut til hinnar guðdómlegu
uppsprettu alls sem er.
Stjórn félagsins
Aðalstarf félagsins fer fram á vegum deildarinnar í höfuðstöðvum
hennar að Ingólfsstræti 22 í Reykjavík.
Stjórn deildarinnar skipa deildarforseti og 4 stjórnarmenn auk
þriggja varamanna, sem kosnir eru á aðalfundi félagsins í maí ár
hvert.
Átta greinar félagsins tengjast höfuðstöðvunum. Þær eru:
Baldur - Formenn: Árni Reynisson og Þórarinn Þórarinsson
Blavatsky - Formaður: Jón E Benediktsson
Dögun - Formaður: Vilhjálmur Hjaltalín Jónsson
Mörk - Formaður: Jóhannes Ágústsson
Reykjavíkurstúkan - Formaður: Málfríður Magnúsdóttir
Septíma - Formaður: Ragnheiður Haraldsdóttir
Veda - Formaður: Birgir Bjarnason,
Systkinabandið, Akureyri - Formaður: Eva Úlfsdóttir
Forsíða | Guðspekifélagið | Dagskrá | Greinasafnr | Gangleri | Bókaþjónusta | Bókasafn | Tenglar