
Dagskrá í húsi Lífspekifélagsins (Guðspekifélagsins) að Ingólfsstræti 22
10. feb..Föstudagur kl 20,30
Ásdís Olsen: Hamingja og núvitund.Ásdís fjallar um hagnýtar aðferðir úr smiðju jákvæðrar sálfræði sem hafa
sannað gildi sitt í rannsóknum. Kynntar verða 10 leiðir til að auka
vellíðan og hamingju í daglegu lífi og verður sérstök áhersla lögð á núvitund og hugarró..
11. feb.. Laugardagur kl 15,30 Guðlaugur Leósson: Forvarnir gegn slysum á heimilum.
Guðlaugur ræðir um forvarnir gegn helstu slysum á heimilum en hann hefur kennt skyndihjálp o.fl. hjá Rauða krossinum síðan 1976.
Bókaþjónustan er opin á fimmtudögum kl. 16.30 -18.30


Hjálmarssonar og hverju velti hann
öðru fremur fyrir sér? Í greininni er einvörðungu stuðst við bækur
hans, einkum þær sem beinlínis fjalla um hugrækt, dulfræði og jóga.
Sigvaldi segir: "Það er aðeins einn leyndardómur í dag: hið innra í
manninum sjálfum. Og ef nútímamaðurinn á einhvern guð, þá er hann
þar."

sýnist hverjum þegar þessa spurningu ber á góma. Hugmyndin
um eðlislæga eigingirni og árásarhneigð manneskjunnar var
lengi ríkjandi í vestrænni menningu en á síðustu áratugum
hefur þessi svartsýni á mannlegt eðli vikið fyrir bjartsýnni
skoðunum sem eru nær þeim sem koma til dæmis fram í
búddískri heimspeki. Þar er gert ráð fyrir að
grundvallareðli manneskjunnar einkennist af kærleik og
samhygð. Ögun hugans er kjarninn í kenningum Búdda og
vestrænir vísindamenn eru nú margir þeirrar skoðunar að
umhyggja fyrir öðrum eigi sér djúpar rætur í mannlegu eðli.
Við getum orðið bæði umhyggjusöm og kærleiksrík eða
ofbeldisfull og andstyggileg; allt eftir því hvaða þætti við
leggjum rækt við í fari okkar.